Sigurður G. Guðjónsson lögmaður veðmálafyrirtækisins Betsson skýtur föstum skotum á […]
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður veðmálafyrirtækisins Betsson skýtur föstum skotum á […]
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður veðmálafyrirtækisins Betsson skýtur föstum skotum á Íþrótta og Ólympíusamband Íslands og Lárus Blöndal formann sambandsins, í aðsendri grein á Vísi í dag. Hann segir Lárus þurfa að taka til í eigin veðmálastarfsemi áður en hann fari að tala fyrir því að banna erendar veðmálasíður.
Greinin er innlegg í umræðu síðustu vikna um aukin umsvif erlendra veðmálasíðna hér á landi, ásamt aukinni þáttöku landsmanna í þess konar fjárhættuspilum.
Lárus hafði áður lýst þeirri skoðun sinni að brýnt væri að stjórnvöld bregðist við þessum auknu umsvifum erlendra veðmálasíðna. Ólíðandi sé að þær fái að „troða sér inn í íslenskt samfélag“. Einungis megi reka starfsemina í þeim tilgangi að afla fjár til almannaheilla hér á landi.
Sigurður tekur undir með Lárusi að ótækt sé að veðmálafyrirtæki stýri markaðssetningu sinni sérstaklega að ungmennum, líkt og fordæmi virðast vera fyrir.
„Það væri hins vegar tilvalið fyrir Lárus að byrja á að taka til í eigin rekstri í þeim efnum ef hann vill eyða öllum veðmálaauglýsingum úr umhverfi þar sem unglingar koma við sögu. Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands er aðaleigandi umfangsmesta veðmálafyrirtækis landsins, Íslenskra getrauna, sem borgar háa upphæð fyrir að láta næstefstu deild karla í fótbolta heita í höfuðið á veðmálastarfsemi sinni,“ segir Sigurður G.
„Í Lengjudeildinni spilar ár hvert fjöldi leikmanna sem hefur ekki náð átján ára aldri og áhorfendapallar liða í deildinni eru þar að auki fullar af börnum.“
Lengjan taki þannig virkan þátt í starfi leikmanna á barnsaldri og beini efni sínu að fjölbreyttum stuðningshópum liðanna, þar á meðal börnum.
Sigurður kallar auk þess eftir upplýsingum um það hversu miklum fjáhæðum sé eytt í auglýsingar Íslenskra getrauna, auk upplýsingum um laun- og hlunnindi stjórnenda og stjórnarfólks.
Sigurður vill meina að veðmálafyrirtækið sem hann starfar fyrir, Betsson.com, hafi vandað mjög til verka. Lúti ströngum reglum ESB um varnir gegn peningaþvætti og sjái til þess að einstaklingar undir átján ára aldri geti ekki veðjað á þeirra síðu.
Sigurður vill því beina því til fjölmiðla og fólks að gera greinarmun á þeim fyrirtækjum „sem gera hlutina illa og þeim fyrirtækjum sem gera þá vel“.
„Betsson hefur fyrir löngu tekið þess skref af eigin hvötum, en eins og fréttir undanfarinna vikna bera með sér, á það því miður ekki við um ýmis önnur fyrirtæki. Bæði erlend en líka innlend eins og bent er á hér að ofan.“
Ólafur Björn Sverrisson skrifaði greinina á visir.is
BML Group Ltd is licensed and regulated by Malta Gaming Authority under license MGA/CRP/108/2004 issued on 1 August 2018.